Fundin! Olivía er komin heim!

 

Hugsi

Við Olivía sendum öllum þeim, er hjálpuðu til við leitina að henni, hjartans þakkir Heart  !!!!!

Eftir að Olivía hafði einungis verið í 1/2 tíma hjá nýjum eigendum í Vesturbæ Reykjavíkur, voru þau búin að týna henni!

Þetta var í fyrsta skipti sem að hún kom til höfuðborgarinnar, alls óvön bílaumferð og mannmergð. 

Hún flæktist um borgina í tæpa 3 sólarhringa áður en að hún fann, að sjálfsdáðun, húsið þar sem hún hafði komið til og verið aðeins í eitt skipti. 

'Eg vil þakka ÖLLUM vinum, vandamönnum, ókunnugum og þá sérstaklega Sveinu vinkonu og syni hennar Arnari fyrir hreint ómetanlega hjálp við leitina að litlu stelpunni minni.Sveina mín þú ert svo sannarlega vinur í RAUN.    Sjöfn Rafnsdóttir                         

 

 

 


Hvolpar

Leóna Olivía og Tangó        Yndislegu litlu krílin mín Leóna, Olivía og Tangó

 

 

Við erum nýorðin 4 mánaða og ekki seinna að vænta en að fara að flytja að heiman og stofna eigin fjölskyldu.

Erum öll yndisleg og tilbúin til að veita nýjum húsbændum trygglyndi, ást og hlýju Heart

 

Áhugasömum velkomið að hafa samband við; sjofn@handverk.is 

 

 


Gefins Hvolpar/Allir nú þegar lofaðir/Þakka sýndan áhuga

Tvistur   Litli gullmolinn minn sem ég tími ekki að láta en verð. Hann er yndislegur hnoðri og í fyrsta skipti sem hann kom í hesthúsið var eins og hann hefði aldrei verið annars staðar, hann var alveg óhræddur við hestana.InLove

Vonandi finn ég góða fjölskyldu fyrir hann.

Birta og Gríma  Hér er Gríma litla með mömmu sinni, hún er fyrstfædd með mikla ábyrgðartilfinningu, fór strax í uppeldisstörfin með foreldrum sínum. Yndislega falleg og þvílík augu.KissingInLove

Hún er algjör dama.

Tinna  Svo er það litla krúttið mitt, Tinna lítil stríðin, uppátækjasöm og ótrúlega fyndin.

Engill minn sem kemur manni til að hlæja út í eitt.GrinHeart


OG litlu krílin dafna...

DSC00346

 

Hreint ótrúlegt hvað þeir stækka, það er merkjanlegur dagamunur enda Birta þvílíkt dugleg mamma.

Þeir eru rétt 3 vikna og hafa tvöfaldað þyngdina, sumir gott betur.

Það verður erfitt að láta þá frá sér, sem verður ekki gert nema að þeir fái eðalfjölskyldur.


Fjölgun á bænum

Stolt móðir

 

Stolt móðir

Fyrsta fæðingin hennar Birtu, hvorki meira né minna en sex hvolpar, þrír strákar og þrjár stelpur.

Það er sko nóg að gera, hún er ótrúlega dugleg og þeir auðvita þeir fallegustu sem sést hafa.

'Abyrgur fyrir ástandinu er einnig Strákur, hinn stolti faðir sem heldur sér til hlés, enn sem komið er.


Okkar dýrmætasta auðlind

Jóel Ólivia SjöfnÞað dýrmætasta sem að við eigum er fjölskyldan.

Ég er elst af sjö systkinum, við erum þrjár systurnar og fjórir bræður.  það var yndislegt að alast upp í svona stórum systkinahóp og hjá ástríkum foreldrum. Við bjuggum við ómetanlegt öryggi þar sem móðir mín var heimavinnandi húsmóðir.

Systkinabörnin eru orðin 15 og  þeirra börn orðin 5 talsins.

Myndin er tekin í Oxford þegar Jóel og Ólivia, börn yngstu systur minnar Erlu voru að kveðja mig, en ég hafði verið hjá þeim í stuttri heimsókn.


Mínir yndislegu bræður

Ómar og Sjöfn    

 

          Sameiginlegt áhugamál systkina

Ómar Rafnsson, Sjöfn Rafnsdóttir og Ólafur Rafnsson, þrjú af sjö systkinum sem stunda hestamennsku. Ekki það að hin eru alltaf hjartanlega velkomin með á bak, foreldrar sem og aðrir fjölskyldumeðlimir og vinir.


Stjórnarskrá 'Islands

  Vonandi hafa 'Islendingar þá visku til að bera og verða þeirrar gæfu aðnjótandi að hér komist á stjórnlagaþing.

Það er orðið löngu tímabært að hefja uppbyggingu á réttlátara og heilbrigðara samfélagi, í stað þess RáðHerraRíkis sem hér hefur fengið að grassera.

 Að farið sé betur með auðæfi þessa lands, þá sér í lagi mannauðinn!

www.nyttlydveldi.is


Sjöfn og Gyðja

Sjöfn og Gyðja

 

Gyðja og Forkur gáfu yndislegt folad, hryssu sem fékk nafnið Gæfa.

Gæfa fæddist sama dag og afi minn Gústafur í móðurætt, hefði orðið 100 ára, þann 20 júlí 2005.

Gæfa hefur það besta frá báðum foreldrum og bind ég miklar vonir við hana.


Sólarlag Stóra-Klofa

DSC00033

Vetrar-Sólarlag

Þetta er útsýnið hjá okkur úr stofunni í Stóra-Klofa,ekki ónýtt.

 Yndisleg íslensk náttúra og smáfuglarnir tístandi

í garðinum alsælir, með nóg að borða.


Næsta síða »

Höfundur

Sigurbjörg Sjöfn Rafnsdóttir
Sigurbjörg Sjöfn Rafnsdóttir

Sjöfn Rafnsdóttir

Hárgreiðslumeistari, númeira hrossabóndi, myndlist og skúlptur.

Stóra-Klofa,

851 HELLA

Færsluflokkar

Eldri færslur

2011

2009

Nýjustu myndir

  • Mæðgurnar Gríma og Olivía
  • Gríma Olivía og Leóna
  • 'Uti í fyrsta sinn
  • Væntumþykja Amma Birta og Olivía. Tangó

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Leita í fréttum mbl.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1011

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband